Occupational accident
Hafir þú lent í vinnuslysi er mikilvægt að bregðast fljótt við og tilkynna slysið til viðeigandi aðila svo að bótaréttur falli ekki niður. Við hvetjum þig að hafa samband við lögmenn Bótaréttar og fá leiðsögn um næstu skref. Við tökum vel á móti þér og aðstoðum þig í gegnum ferlið.
Slys tilkynnt of seint
Því miður er það svo að margir átta sig ekki á mögulegum rétti til bóta þegar slys verður í frítíma og missa þannig af rétti sínum til bóta sé slys tilkynnt of seint. Oftast er ástæðan sú að fólk telur slys ekki vera nógu alvarlegt, veit ekki hvert það á að snúa sér eða fær ekki fullnægjandi upplýsingar frá sínu tryggingafélagi. Því er mikilvægt að fá afstöðu óháðra aðila sem þekkja reglurnar og vinna með þær daginn út og inn.
Mikilvægt er að tilkynnið slys án tafar svo bótaréttur falli ekki niður hjá tryggingafélögum eða öðrum hlutaðeigandi aðilum.
Þú þekkir þitt mál - við þekkjum úrræðin og vitum hversu langan tíma þú hefur til að fá bót þinna mála.
Skyldur atvinnurekanda
Atvinnurekanda ber að slysatryggja starfsfólk sitt í vinnutíma og á beinni leið til og frá vinnu. Tryggingar launafólks byggja á ákvæðum kjarasamninga sem starfið fellur undir en einnig getur bótaréttur verið til staðar hjá Sjúkratryggingum Íslands og úr öðrum almennum slysatryggingum. Atvinnurekanda ber að skapa starfsfólki sínu forsvaranlegar vinnuaðstæður. Verði slys rakið til ófullnægjandi starfsaðstæðna reynir á skaðabótaábyrgð vinnuveitanda og hvort slys er vinnuveitanda eða starfsmönnum hans um að kenna. Vissar starfstéttir njóta ríkari verndar, t.d. lögreglumenn, sjómenn, fangaverðir og þeir einstaklingar sem sinna krefjandi umönnunarstörfum, t.d. á hjúkrunarheimilum, spítölum og meðferðarheimilum. Þessi upptalning er ekki tæmandi talin.
Að mörgu er að huga
Þar sem að skilin á milli vinnu og frítíma eru ekki alltaf skýr geta ýmis álitamál komið upp. Ekki er alltaf ljóst hvar ábyrgðin liggur og slysamál starfsmanna geta verið viðkvæmt vegna tengsla við vinnuveitanda. Þá er gott að hafa aðila með sér í liði sem þekkir lögin, reglurnar og ferlið til að fara með málið áfram. Ekki bíða með að leita ráðgjafar og fá upplýsingar til að tryggja þína hagsmuni. Það kostar ekkert að leita til okkar!
Bótaréttur, bót í þínu máli.
Viltu vita meira?
Nánari upplýsingar um bætur vegna vinnuslyss
Sem og almennt á sviði skaðabótaréttar þarf að skoða hvert tilvik sérstaklega, út frá eðli starfs, starfslýsingu, gildandi lögum og dómafordæmum. Atriði sem lögmaður skoðar sé til hans leitað. Hér reynir auk þess á ábyrgð vinnuveitanda, hvort starfaðstæður teljist forsvaranlegar og hvort slys sé vinnuveitanda eða starfsmönnum um að kenna.
Líkamstjón eru bótaskyld úr slysatryggingu launþega sem tryggð eru í kjarasamningum en einnig áttu rétt á bótum frá Sjúkratryggingum Íslands ef metin örorka er 10% eða hærri. Þá gilda lög sem tryggja vissum starfsstéttum ríkari vernd, td. lögreglumönnum og starfsstéttum þar sem fólk gæti mögulega orðið fyrir atlögu skjólstæðinga sinna.
Bótaréttur vegna vinnuslysa byggir á ákvæðum þess kjarasamnings sem starfið fellur undir. Sumir kjarasamningar veita starfsmönnum víðtækari vernd í formi sólarhringstryggingar og eru starfsmenn þá einnig tryggðir í frítíma í gegnum launþegatryggingu vinnuveitanda.
Hvaða tryggingar tryggja vinnuslys?
Réttur til bóta vegna vinnuslysa er fyrst og fremst tryggður í gegnum launþegatryggingar. Þá getur einnig verið réttur til bóta í gegnum slysatryggingar á vegum Sjúkratrygginga Íslands og aðrar almennar slysatryggingar.
Hvað er bætt úr tryggingum vegna vinnuslysa?
Sjúkrakostnaður
Almennt greiðist sjúkrakostnaður vegna læknisheimsókna, lyfja og meðferðar hjá sjúkraþjálfara. Mikilvægt er að halda vel utan um alla reikninga sem falla til vegna slyssins og fá tilvísun frá lækni ef leita þarf til sjúkraþjálfara. Í einhverjum tilvikum er greiddur kostnaður vegna sálfræðiþjónustu eða annarrar sérhæfðrar meðferðar en slíkt er þó ávallt skoðað hverju sinni.
Bætur vegna tekjutaps
Ef vinnuslys veldur óvinnufærni ber vinnuveitanda að greiða starfsmanni laun í samræmi við ákvæði í kjarasamning um slysarétt.
Bætur vegna varanlegs miska
Hvaða erfiðleikum hefur slysið valdið, hvort heldur andlega og líkamlega? Bætur samkvæmt þessum lið taka mið af áverkum slyss út frá læknisfræðilegu sjónamiði og hversu miklum erfiðleikum þeir valda í lífi hins slasaða.
Bætur fyrir varanlega örorku
Hverjir eru möguleikar þínir á að vinna sömu vinnu og af sama krafti út lífið eftir slys? Bætur fyrir varanlega örorku taka mið af framtíðartekjutapi vegna varanlegrar skerðingar á aflahæfi sem slysaáverkarnir hafa í för með sér. Bæturnar reiknast út frá aldri tjónþola og tekjum síðastliðin þrjú ár áður en slys varð. Hafi tjónþoli verið tekjulítill síðastliðinn þrjú ár fyrir slysið er miðað við ákveðin lágmarkslaun.
Bætur vegna varanlegrar örorku eru reiknaðar þegar ákvæði skaðabótalaga eiga við um uppgjör slysatjóns
Hvað tekur ferlið langan tíma?
Ef slys veldur varanlegum afleiðingum þarf að óska eftir örorkumati hjá hlutlausum matsmönnum. Slíkt mat fer yfirleitt ekki fram fyrr en í fyrsta lagi ári eftir slys og með samþykki þess tryggingafélags sem í hlut á.
Ef slys er einnig skráð hjá Sjúkratryggingum Íslands þarf að framkvæma annað mat og er það í höndum sérstakra matsmanna á vegum Sjúkratrygginga.
Kostar að fá lögmann Bótaréttar í málið?
Fyrsta viðtal er alltaf frítt og fáist ekki greiddar bætur vegna slyssins greiðir þú engan lögmannskostnað.
Fáir þú greiddar bætur vegna slyssins greiðir þú lögmannskostnað í samræmi við gjaldskrá Bótaréttar en kostnaðurinn er dreginn frá í lok máls.
Lentir þú í slysi?
Hafðu samband við okkur og við aðstoðum þig við að sækja þær bætur sem þú átt rétt á.