CHILI STUDIO er hönnunar og framleiðslustofa með SPICY hugmyndir.
Við eigum óteljandi krydd í hillunni sem við notum til að krydda uppá markaðsefni viðskiptavina okkar.
Með þessari aðferð ræktum við safarík vörumerki, ferska hönnun og annað gómsætt auglýsinga- og markaðsefni sem grípur athygli fólks og skilur eftir sig ógleymanleg áhrif.
TEIMIÐ
Helgi Pétur og Daði hófu samstarf og stofnuðu Chili Studio árið 2020. Þeir eru sjaldnast kallaðir Chili Bræður en þó ekki aldrei. Helgi er grafískur hönnuður og leiðtogi allra hönnunarmála hjá Chili Studio. Daði hefur umsjón með allri framleiðslu á kvikmynduðu efni og ljósmyndum. Saman mynda þeir skapandi teymi og safaríka blöndu af hönnun og kvikmynduðu efni.
Daði Daníelsson
dadi@chili.is